Verkefni

Verkefni sem ég hef unnið að

Hér eru nokkur dæmi um öpp og vefverkefni sem ég hef smíðað með áherslu á skýra framsetningu og hagnýta notkun.

Líkamsræktarapp

Ég ákvað að búa til líkamsræktarapp vegna þess að mig langaði í einfaldari og skýrari leið til að halda utan um æfingar, þyngdir og framfarir. Mig vantaði lausn sem væri þægileg í notkun, hjálpaði mér að sjá hvað ég hafði gert áður og gerði mér auðveldara að halda rútínu. Verkefnið hefur hjálpað mér að sameina áhuga minn á hreyfingu og forritun í eitthvað sem hefur raunverulegt gildi í mínu daglega lífi.

Next.jsMongoDBShadCN UI

CVBUILDER app

Ég bjó til þetta app út frá eigin þörf fyrir betra skipulag í atvinnuleit. Mig langaði í eina lausn þar sem ég gæti haldið utan um umsóknir, ferilskrár og kynningarbréf á skýran og einfaldan hátt. Það hefur hjálpað mér að sjá betur yfirlit yfir ferlið, spara tíma og gera umsóknavinnuna markvissari og minna stressandi.

ViteShadCN UIMySQLPHP

Meal Planner / Næringarapp

Ég ákvað að búa til þetta app vegna þess að mig langaði að halda betur utan um uppskriftir, næringarupplýsingar og hugmyndir sem nýtast í daglegu lífi. Markmiðið var að hafa allt á einum stað á aðgengilegan og þægilegan hátt, í stað þess að hafa upplýsingar dreifðar út um allt. Verkefnið hefur hjálpað mér að skipuleggja betur mat og næringu og um leið þróa lausn sem ég get sjálfur haft gagn af. Með appinu getur maður plannað mat fyrir daginn, vikuna eða lengra framm í tímann

Next.jsMongoDBShadCN UI

Gestasíðuapp fyrir airbnb leigjendur

Frænka mín og maðurinn hennar eru með Airbnb leigu og voru þau að spyrjast fyrir um hvort ég væri með leið til að sýna leigjendum þeirra hvaða gönguleiðir eru í boði á svæðinu, þannig ég fékk þessa hugmynd að útbúa svona gestasíðukefi sem hægt er að nota til að bæta við upplýsingum eftir þörfum sem að leigjendur þeirra fá aðgang að á meðan á dvöl þeirra stendur og fá þá allar þær upplýsingar sem þau þurfa um svæðið og þess háttar ásamt gönguleiðum o.fl.

VitePHPShadCN UIMySQL

Wordpress vefir

Ég hef reynslu að búa til og viðhalda Wordpress vefjum fyrir smærri fyrirtæki og einstaklinga. Ég hef hjálpað til við að setja upp og sérsníða Wordpress þemu, bæta við nauðsynlegum viðbótum og tryggja að vefirnir séu hraðir, öruggir og auðvelt að uppfæra. Þetta hefur verið gagnlegt fyrir þá sem vilja einfalda lausn fyrir vefsíðu sína án þess að þurfa að kafa djúpt í forritun eða tæknilega hluti.

WordpressPHPShadCN UIMySQLWPGraphQLNext.js

React og Next.js vefir

Ég hef einnig unnið að því að búa til vefi með React og Next.js fyrir þá sem vilja meira sérsniðna og hagnýta lausn. Þetta hefur verið gagnlegt fyrir þá sem vilja vefi sem eru hraðir, sveigjanlegir og auðvelt að viðhalda, en samt hafa skýra og fallega framsetningu. Ég hef hjálpað til við að byggja upp allt frá einföldum upplýsingasíðum til flóknari veflausna með samþættingu við gagnagrunna og API.

ReactNext.jsShadCN UINode.jsMongoDBMySQLPHP