Grímsi Workout er íslensk æfingadagbók sem hjálpar þér að skipuleggja æfingarnar, skrá árangurinn og fylgjast með raunverulegum framförum — án óþarfa flækjustigs.
Í upphafi var markmiðið einfalt: að geta skráð hvaða æfingar voru framkvæmdar, hversu mörg sett voru tekin og hvaða þyngd var notuð.
Fljótlega bættust við æfingarútínur, dagatal, leit, æfingasafn og ítarlegri upplýsingar fyrir hverja æfingu.
Í dag er þetta orðið öflugt en aðgengilegt app fyrir styrktaræfingar, líkamsþyngdaræfingar, vélar, lóð og fjölbreyttar æfingaáætlanir.
Þú þarft ekki flóknara æfingaprógramm. Þú þarft betri yfirsýn yfir það sem þú ert þegar að gera.
Skipulag • Framfarir • SamfellaSkráðu endurtekningar, þyngd, tíma, stillingar á tækjum og athugasemdir. Þú færð nákvæma sögu yfir það sem þú framkvæmdir.
Settu saman þín eigin æfingaplön og veldu æfingar úr safninu. Þú getur notað sömu rútínu aftur og fylgst með framförunum.
Skoðaðu hvað þú gerðir á ákveðnum degi, finndu eldri æfingar og sjáðu hversu reglulegur þú hefur verið.
Bættu við nýjum æfingum, breyttu þeim, flokkaðu þær eftir vöðvahópum og vistaðu stillingar sem eiga við um ákveðin tæki eða æfingar.
Appið hentar fyrir vélar, stangir, handlóð, líkamsþyngdaræfingar, tímamældar æfingar og aðrar æfingaaðferðir.
Skýrt viðmót, góð yfirsýn og engin óþörf truflun. Markmiðið er að þú getir einbeitt þér að æfingunni.
Fáðu aðgang að íslensku æfingaappi sem hefur verið þróað út frá raunverulegri notkun í ræktinni. Einföld leið til að ná betri yfirsýn, meiri samfellu og markvissari árangri.
Aðgangur gegn vægu mánaðargjaldi. Sendu mér línu á grimurnet(hjá)gmail.com og við finnum eitthvað gott verð