Merry Christmas 🎄
Gleðileg jól kæra fjölskylda og vinir. Vonandi höfðuð þið það gott. Þetta eru fyrstu jólin eftir að Marta systir lést fyrr á þessu ári 7. Mars.
Ég var í fríi í vinnunni, til að klára orlofið mitt ákvað ég að vera í fríi alla föstudaga. Ég var í sundi þegar úrið mitt vara að hringja stanslaust þannig ég dreif mig upp úr sundi og hringdi síminn aftur og fékk ég semsagt þær fréttir að Marta systir mín fannst látin þar sem hún var í göngutúr með Bláey. Ég náði varla að labba heim ég brotnaði algjörlega niður náði varla andanum ❤️ Marta á akkúrat afmæli í dag 25. Des. Til hamingju með daginn elsku Marta mín. Ég sakna þín endalaust mikið ❤️

